Skuldleysisvottirð staðfestir að gjaldfallnar skattkröfur á kennitölu einstaklinga og fyrirtækja hafi verið greiddar.
Áður en skuldleysisvottorð er sótt er mælt með að
skoða stöðu við ríkissjóð og stofnanir. Aðeins er hægt að sækja vottorðið ef staðan er 0 kr.
greiða skatta og gjöld sem eru gjaldfallin.
Athugið að kröfur geta verið gjaldfallnar þó þær séu ekki komnar á eindaga og geta komið í veg fyrir afgreiðslu vottorðsins.
Vottorðið er á íslensku.
Ítarlegri upplýsingar um hreyfingar og stöðu einstaklinga og lögaðila við ríkissjóð má finna undir flokknum fjármál á Mínum síðum.
Fyrirtæki
Til þess að sækja vottorð fyrir fyrirtæki eða lögaðila þá þarf innskráður notandi að vera skráður prókúruhafi fyrirtækis í fyrirtækjaskrá Skattsins.

Þjónustuaðili
Skatturinn