
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Barna- og unglingageðdeildir (BUGL)
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
10.06.2025
Umsóknarfrestur
24.06.2025
Félagsráðgjafi - Barna- og unglingageðdeildir (BUGL)
Metnaðarfullur félagsráðgjafi óskast til starfa á legudeild BUGL. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf þar sem þverfagleg teymisvinna og fjölskylduvinna er í forgrunni. Starfið býður upp á margvísleg tækifæri til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð geðraskana hjá börnum.
Á barna- og unglingageðdeild starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingsmiðuð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, dag/legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Starfið getur hentað bæði nýjum sem og reynslumiklum fagaðila. Möguleiki er á frekari þjálfun í meðferðarvinnu eftir því sem við á.
Um er að ræða fullt starf á dag- og legudeild og er starfið laust frá 1. september 2ö25. Starfið felur í sér mat og meðferð í málum þeirra barna sem þurfa á þjónustu dag- og legudeildar að halda. Innlagnir eru ýmist bráðar eða skipulagðar fram í tímann.
Helstu verkefni og ábyrgð
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi deildarinnar
Samþætting félagslegra úrræða og meðferðar
Eftirfylgd í kjölfar útskrifta og samstarf við sveitarfélög vegna félagslegra úrræða
Markvisst samstarf með fjölskyldum og aðstandendum samkvæmt stefnu Landspítala
Miðlun fræðslu og þekkingar á vanda barna með langvarandi fjölþættann, samsettan, geðrænan vanda
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
Þekking og reynsla af meðferðar- og/ eða ráðgjafarstörfum
Þekking af fjölskylduvinnu kostur
Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og geta til að takast á við krefjandi verkefni
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félagsráðgjafafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, félagsráðgjafi
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Starfshlutfall er 90-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Guðlaug María Júlíusdóttir, gudljul@landspitali.is
Sími: 543-4300

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Barna- og unglingageðdeildir (BUGL)
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
90-100%
Starf skráð
10.06.2025
Umsóknarfrestur
24.06.2025